flugfréttir
Fyrsta flug WOW air til Pittsburgh í dag
WOW air kynnti Pittsburgh sem nýjan áfangastað í nóvember í fyrra
WOW air mun í dag hefja flug til nýs áfangastaðar en klukkan 15:10 í dag verður jómfrúarflug félagsins til Pittsburgh í Pennsylvaníu.
Pittsburgh er sjöundi áfangastaður WOW air í Bandaríkjunum en þann 13. júlí næstkomandi
bætist Chicago við sem áttunda borgin í Bandaríkjunum.
Chicago verður næstseinasti áfangastaðurinn hjá WOW air sem eru í kortunum í bili á þessu ári
en Tel Aviv flug félagsins hefst þann 12. september.
WOW air kynnti Pittsburgh sem nýjan áfangastað í nóvember í fyrra en Skúli Mogensen, stofnandi WOW air, segir
að Pittsburgh hafi orðið fyrir valinu þar sem eftirspurn eftir flugi milli Evrópu og áfangastaða á austurströnd
Bandaríkjanna hafi aukist töluvert að undanförnu.
Ekkert íslenskt flugfélag hefur hingað til flogið til Pittsburgh sem er önnur stærsta borgin í fylkinu en borgin eru stundum kölluð „borg brúanna“ en yfir 446 brýr eru að finna í borginni sem er mikil íþróttaborg.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.