flugfréttir

400 atvinnuflugmenn í Rússlandi hafa verið sviptir leyfinu

- 1.000 fleiri flugmenn gætu misst réttindi sín í rassíu flugmálayfirvalda

16. júní 2017

|

Frétt skrifuð kl. 10:30

Í maí höfðu flugmálayfirvöld í Rússlandi afturkallað réttindi frá 400 atvinnuflugmönnum þar í landi

Um fjórðungar allra atvinnuflugmanna í Rússlandi gæti misst réttindi sín til að fljúga á næstu misserum í kjölfar herferðar flugmálayfirvalda þar í landi.

Rússnesk flugmálayfirvöld hafa nú þegar afturkallað leyfi meðal nokkur hundruð atvinnuflugmanna í landinu en um er að ræða þá flugmenn sem gengu í gegnum atvinnuflugmannsnám á sínum tíma í þeim flugskólum í Rússlandi sem hafa ekki verið viðurkenndir af rússnesku stjórnvöldum.

Átakið er liður flugmálayfirvalda til að taka á öryggismálum í fluginu í Rússlandi en það er meðal annars tilkomið vegna flugslyssins er Boeing 737-500 þota Tatarstan Airlines fórst á flugvellinum í borginni Kazan í nóvember árið 2013.

Við rannsókn þess slyss kom meðal annars í ljós að flugstjóri vélarinnar hafði ekki lokið við atvinnuflugmannsnámið og var því að stjórna loftfari ólöglega.

Flugmaður um borð í Airbus A320 þotu

Slysið varð til þess að rússnesk flugmálayfirvöld fóru að beina augum að þeim flugskólum í Rússlandi sem starfa án leyfis frá yfirvöldum en fjölmargir rússneskir flugmenn telja aðgerðirnar fullmikið af því góða og segja að verið sé bregðast of harkalega við með því að svipta fjölda atvinnuflugmanna réttindum sínum.

Aðeins ríkisreknir flugskólar mega kenna atvinnuflug

Rússneska flugmálastofnunin, Rosaviatsiya, segir hinsvegar að margir vankantar séu að finna í flugkennslu meðal þeirra flugskóla í landinu sem eru ekki viðurkenndir og sumir séu að „stikla á stóru“ í námsefninu til að útskrifa nemendur sem fyrst.

Talsmaður Rosaviatsiya sagði í maí að búið sé að afturkalla um 400 réttindi frá atvinnuflugmönnum í Rússlandi og sé möguleiki á að um 1.000 fleiri flugmenn verði sviptir til viðbótar á næstunni.

Þá segir að í lögum komi fram að einkaskólar, sem eru ekki á vegum rússneska ríkisins, megi aðeins kenna einkaflug en allt atvinnuflugmannsnám skuli eingöngu fara fram í ríkisreknum flugskólum.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga