flugfréttir

El Al Israel háværasta og skítugasta félagið á Heathrow

19. júní 2017

|

Frétt skrifuð kl. 06:10

Boeing 777 þota El Al Israel Airlines í aðflugi að Heathrow-flugvellinum í London

Ísraelska flugfélagið El Al Israel Airlines hefur verið útnefnt háværasta og skítugasta flugfélagið sem flýgur um Heathrow-flugvöllinn í Lundúnum.

Þetta kemur fram í niðurstöðum úr könnun sem Heathrow-flugvöllurinn gerði en upplýsingar voru teknar saman um 50 flugfélög af þeim 84 sem fljúga um flugvöllinn og kom í ljós að þotur El Al Israel Airlines eru háværasta af þeim öllum.

Þá kom einnig í ljós að vélar félagsins menga mest sem þýðir að losun kolefna út í andrúmsloftið er mjög há er kemur að flugvélum El Al Israel Airlines.

Könnunin var hluti af verkefni sem kallast „The Fly Quiet and Clean League“ sem hvetur flugfélög til að fljúga hagkvæmari, umhverfisvænni og hljóðlátari vélum.

Önnur flugfélög, sem voru einnig á botnlistanum er koma að hávaða og hreinlæti voru Kuwait Airways, Middle East Airlines, Pakistan International (PIA) og Oman Air.

Það flugfélag sem þykir umhverfisvænasta og hljóðlátasta á Heathrow-flugvelli eru minni þotur British Airways sem fljúga til áfangastaða í Evrópu en í 2. sæti kom Aer Lingus, Etihad Airways í 3. sæti og SAS í því fjórða.

Þess má geta að Icelandair lenti í 24. sæti í könnuninni en listann í heild sinni má finna hérna.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga