flugfréttir

Fjórir viðskiptavinir til viðbótar panta Boeing 737 MAX 10

19. júní 2017

|

Frétt skrifuð kl. 10:30

Boeing kynnti Boeing 737 MAX 10 í morgun á flugsýningunni Paris Air Show

Fjórir viðskiptavinir til viðbótar hafa lagt inn pöntun í nýju Boeing 737 MAX 10 þotuna en þau eru TUI, Tibet Financial Leasing, SpiceJet og flugvélaleigan CDB Aviation Lease Finance.

TUI Group hefur breytt pöntun sem fyrirtækið hafði áður lagt inn til Boeing yfir í átján þotur af gerðinni Boeing 737 MAX 10 en ekki kemur fram hvaða tegund af 737 MAX félagið ætlar að skipta út.

CDB Aviation Lease Finance hefur skrifað undir samkomulag um kaup á 60 Boeing 737 MAX þotum og þar af tíu af gerðinni 737 MAX 10 en pöntunin samanstendur einnig af 42 þotum af gerðinni Boeing 737 MAX 8 og átta af gerðinni 737 MAX 9.

CDB Aviation Lease Finance lagði einnig inn pöntun í morgun í átta Dreamliner-þotur af gerðinni Boeing 787-9.

CDB Aviation Lease Finance er írsk flugvélaleiga sem er í eigu China Development Bank en fyrirtækið hefur yfir 300 flugvélar í sinni eigu.

Tibet Financial Leasing gerði nú á ellefta tímanum samkomulag um kaup á 20 Boeing 737 MAX 10 og 737 MAX 8 þotum og þá hefur indverska lágfargjaldafélagið SpiceJet einnig lagt inn pöntun í 40 Boeing 737 MAX vélar.

SpiceJet pantar 20 Boeing 737 MAX 10 þotur en breytir eldri pöntun úr tuttugu 737 MAX 8 þotum yfir í Boeing 737 MAX 10.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga