flugfréttir
Lokaskýrsla gefin út vegna flugslyssins á Akureyri árið 2013
- Beygjan of skörp fyrir hönnun vélarinnar
TF-MYX fórst við kappakstursbrautina við Hlíðarfjallsveg á Akureyri þann 5. ágúst árið 2013
Rannsóknarnefnd samgönguslysa hefur gefið frá sér lokaskýrslu vegna flugslyss sem átti sér stað þann 5. ágúst árið 2013 er King Air 200 sjúkraflugvél frá Mýflugi (TF-MYX) fórst við kappakstursbraut við Hlíðarfjallsveg á Akureyri.
Flugvélin var á leið frá Reykjavík til Akureyrar eftir sjúkraflug frá Hornafirði
til Reykjavíkur en um borð voru flugmaður, flugstjóri og sjúkraflutningsmaður.
Flugstjórinn og sjúkraflutningsmaðurinn létu lífið í slysinu en flugmaðurinn slasaðist
töluvert.
Mat rannsóknarnefndarinnar er sú að mannleg mistök hafi orsakað flugslysið
þar sem vélinni var flogið of lágt og látin taka of krappa beygju og var afl vélarinnar ekki
nægilegt fyrir þá stöðu sem vélin var sett í.
Vélin hafði ekki undan til að taka beygjuna
og ekki í nógu mikilli hæð til að koma sér út úr aðstæðunum.
Halli vélarinnar var komin í 72 gráður sem er mun meiri halli en hönnun
vélarinnar gerir ráð fyrir og ekki náðist að leiðrétta vélina þar sem vélin var komin
í of litla hæð yfir jörðu og var farin að skrúfa sig niður þar sem hún missti hæð.
Frá slysstað í ágúst árið 2013
Rannsóknarnefndin telur að flugstjórinn hafi ætla að fara í yfirflug yfir aksturbrautina
þar sem hann var kunnugur Bílaklúbb Akureyrar.
Gerð þrívíddarmódels var tímafrek
Rannsókn slyssins hefur tekið tæp 4 ár en Ragnar Guðmundsson hjá rannsóknarnefndinni
segir að ástæða þess hversu langan tíma rannsóknin hefur tekið megi
rekja til þess að enginn flugriti var um borð í vélinni.
Nauðsynlegt var að ráðast í gerð á þrívíddarmódeli með aðstoð kanadískra sérfræðinga og því næst gerð
hreyfimynd til að átta sig á aðstæðum og fluglagi vélarinnar en út frá því var
hægt að gera sér betur grein fyrir flughraða vélarinnar, halla og stefnu en það verk
tók gríðarlegan langan tíma.
Mýflug hefur sent frá sér tilkynningu í kjölfar lokaskýrslunnar þar sem fram
kemur að það sé mikill léttir að rannsókn sé lokið og hefur Mýflug fært
rannsóknarnefndinni innilegar þakkir fyrir þá miklu vinnu sem lög var í rannsóknina.
„Tilgangurinn með flugslysarannsóknum er að koma í veg fyrir að slys endurtaki
sig. Við vonum að skýrslan reynist mikilvægur þáttur í að sjá til þess að aldrei
verði annar viðlíka atburður. Í því ljósi hvetjum við til ýtarlegrar skoðunar og
umfjöllunar um hana“, segir í tilkynningu.
Hérna má skoða skýrsluna í heild sinni
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.