flugfréttir

Emirates segir að Airbus A380plus sé engin töfralausn

- Vilja að Airbus tryggi endursölumöguleika á notuðum A380 fyrst

22. júní 2017

|

Frétt skrifuð kl. 23:47

Airbus A380 risaþotur Emirates

Emirates segist ekki ætla að panta fleiri Airbus A380 risaþotur nema Airbus fái fleiri flugfélög til að panta vélina og tryggi það að notaðar A380 þotur eigi sér framtíð.

Emirates vill sjá að markaður sé fyrir notaðar Airbus A380 risaþotur því ef ekki mun félagið sitja uppi með fyrstu A380 vélarnar og ekki ná að selja þær ætli félagið sér að skipta þeim út fyrir nýrri risaþotur.

Tim Clark, forstjóri Emirates, segir að það sé ekki nóg að kynna Airbus A380plus sem endurbætta uppfærslu af risaþotunni og þarf framleiðandinn að hans mati að reyna fá fleiri flugfélög til að panta A380.

Þá segir Clark að Emirates hafi ekki áhuga á þeim breytingum sem Airbus hefur kynnt á stiganum milli þilfaranna þar sem stiginn sé orðin aðaleinkenni Emirates og muni breyting á honum hafa áhrif á ímynd félagsins.

Airbus hefur séð fram á að með því að einfalda stigann myndi skapa pláss fyrir 23 sæti til viðbótar um borð í risaþotunni.

Þá hefur Emirates frekar áhuga á að fá stærri vænglinga sem möguleika fyrir þær A380 þotur sem félagið hefur nú þegar í flotanum en Airbus býður ekki upp á þann möguleika einn og sér.

Emirates hefur lengi reynt að fá Airbus til að koma með Airbus A380neo með nýrri kynslóð hreyfla en Airbus telur það ekki svara kostnaði bara fyrir eitt flugfélag.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga