flugfréttir

Svangur þyrluflugmaður lenti þyrlu við McDonalds í Sydney

- Segist hafa fengið leyfi fyrir lendingunni

26. júní 2017

|

Frétt skrifuð kl. 14:26

Skjáskot af myndbandi sem vegfarandi tók er þyrlan lenti við McDonald´s í Sydney í maí

Flugmálayfirvöld í Ástralíu rannsaka nú atvik eftir að þyrluflugmaður lenti þyrlu sinni við McDonalds veitingastað í Sydney til að sækja sér hamborgara í hádeginu en þyrluflugmaðurinn kveðst hafa fengið leyfi til að lenda þyrlunni við skyndibitastaðinn.

Vegfarendur voru furðu lostnir er þeir sáu þyrluna lenda við McDonalds í Rouse Hill hverfinu í Sydney en atvikið átti sér stað þann 14. maí í vor.

Eftir að þyrluflugmaðurinn hafði náð sér í hamingjumáltið („happy meal“) hélt hann aftur í þyrluna og flaug á brott.

Útvarpsstöðin KIIS í Sydney fjallaði meðal annars um málið og kom fram að þyrluflugmaðurinn hét Dan og sagði hann hafa haft leyfi fyrir lendingunni.

Útvarpsstöðin bauð þyrluflugmanninum 100.000 krónur ef hann myndi setja sig í samband við útvarpsþáttinn og koma í viðtal og hringdi Dan inn skömmu síðar í beina útsendingu.

„Við þyrluflugmenn gerum þetta öðru hvoru og er ekkert athugavert við þetta“, sagði Dan. „Ef þig langar einhvern tímann í ostborgara þá skaltu láta mig fá hnitin yfir staðsetninguna þar sem þú ert og ég skal koma með hamborgara til þín“, sagði Dan.

Sjónvarpsstöðin 9NEWS fékk þær upplýsingar frá áströlskum flugmálayfirvöldum að lendingin við McDonalds hafi tæknilega ekki verið ólögleg ef þyrluflugmaðurinn hafði leyfi frá eiganda veitingastaðarins til að lenda á svæðinu en þrátt fyrir það þá væri verið að rannsaka atvikið.

Myndband:







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga