flugfréttir
Áttræð kona kastaði klinki inn í hreyfil fyrir brottför
- Átti að vera merki um lukku
Vélin var að undirbúa brottför frá Shanghai til Guangzhou þegar áttræð kona kastaði klinki í átt að hreyflinum
Töluverð seinkun varð á flugi CZ380 hjá kínverska flugfélaginu China Southern í gær eftir að eldri kona um áttrætt gerði sér lítið fyrir og kastaði klinki inn í hreyfil á Airbus A320 þotu félagsins.
Farþegar voru að ganga um borð í vélina á Pudong-flugvellinum í Shanghai þegar ein eldri
kona, sem var meðal farþega, kastaði peningum í átt að hreyfli vélarinnar í formi myntar.
Þeir farþegar, sem voru komnir um borð, voru látnir yfirgefa vélina og seinkaði fluginu um fjórar
klukkustundir þar sem flugvirkjar þurftu að yfirfara hreyfilinn.
Í ljós kom að eins ein mynt af níu fór inn í hreyfilinn en restinn endaði á flughlaðinu en að sögn
fjölmiðla í Kína þá var það einn farþegi sem kom auga á gjörning gömlu konunnar og lét hann áhöfnina
vita.
Sú gamla fékk ekki að fljúga með vélinni en við yfirheyrslur þá sagði konan að hún hefði fleygt
klinkinu í hreyfilinn þar sem það átti að boða lukku.
Þess má geta að andvirði klinksins var 1,7 yuan sem jafngildir 25 krónum.
Fleiri myndir:
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.