flugfréttir
Airbus A330 þota föst á flugbraut á Tenerife
- Airbus A321 þota frá WOW air þurfti að lenda á Gran Canaria
Airbus A330-200 þotan var að koma frá Manchester þegar tvö dekk sprungu á hægra hjólastellinu við komuna til Tenerife
Nokkrar tafir urðu á flugi um Reina Sofia flugvöllinn á Tenerife í gær eftir fjórir hjólbarðar sprungu á báðum aðalhjólastellunum á Airbus A330 þotu frá breska flugfélaginu Jet2.com.
Vélin var að lenda á Tenerife eftir flug frá Manchester með 320 farþega
innanborðs þegar tveir hjólbarðar sprungu í lendingu á vinstra hjólastelli auk þess sem loftið fór úr tveimur hjólum á hægra stellinu.
Vélin var föst á bratuinni sem olli því að nokkrar flugvélar, sem voru í aðflugi
að Tenerife, þurftu að fara í fráflug og lenda á öðrum flugvöllum á Kanaríeyjum.
Á meðan sumar vélar þurftu að lenda á norðurflugvellinum (Tenerife Norte) þá voru aðrar
sem þurftu að halda til Gran Canaria og þar á meðal Airbus A321 þota WOW air sem lenti
á Las Palmas í staðinn.
WOW air vélin var í 5 klukkustundir í Las Palmas þar til hún fór aftur í loftið og flaug
yfir til Tenerife eftir að flugvöllurinn opnaðist á ný en flugið þangað yfir tók 33 mínútur.
Myndir:
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.