flugfréttir

Ryanair hefur áhuga á að kaupa meirihluta í Alitalia

29. júní 2017

|

Frétt skrifuð kl. 06:57

Flugvélar Alitalia

Ryanair hefur áhuga á að kaupa meirihluta í ítalska flugfélaginu Alitalia og segir lágfargjaldafélagið írska vera tilbúið að koma með tilboð í félagið.

Ryanair segir að það sé þó háð fjórum skilyrðum sem eru að Alitalia hætti öllu samstarfi sínu við Air France, endurskipuleggi samkomulag sitt við ADR sem á og rekur flugvelli í Róm, endurskoði leigusamninga á flugflota og fækki starfsfólki sínu.

Ryanair tekur til samanburðar að félagið hafi 12.000 starfsmenn og fluttu 120 milljónir farþega árið 2016 á meðan Alitalia hefur 14.000 starfsmenn á meðan 24 milljónir flugu með félaginu.

Michael O´Leary, framkvæmdarstjóri Ryanair, segir að ef félagið muni ekki kaupa meirihlut í félaginu þá sé Ryanair tilbúið að taka yfir rekstur félagsins er snýr að styttri flugleiðum og selja fargjöld í langflugi í bókunarkerfi Ryanair.

18 flugfélög hafa sýnt Alitalia áhuga en meðal þeirra félaga eru British Airways, easyJet, Delta Air Lines og Lufthansa.

Ef enginn kaupandi finnst fyrir haustið þá ætlar stjórn Alitalia að endurskipuleggja rekstur félagsins og segja upp allt að 20.000 starfsmönnum.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga