flugfréttir

Flugfélag í Kólumbíu vill leyfa farþegum að standa um borð

- Vilja kynna „standandi sæti“ í vélum VivaColombia

29. júní 2017

|

Frétt skrifuð kl. 07:23

Airbus A320 þota VovaColombia

Lágfargjaldafélag í Kólumbíu skoðar möguleika að leyfa þeim farþegum, sem kjósa að fljúga ódýrara, að standa um borð í vélunum með tilkomu „standandi sæta“.

Það er flugfélagið VivaColombia sem íhugar að kynna til leiks „lóðrétt sæti“ sem svipar til þeirra plása sem eru að finna í strætisvögnum þar sem farþegar standa með stuðning við bakið.

„Það er til fólk sem er í augnablikinu að leita að fargjöldum á Netinu með möguleika á að standa í þeim tilgangi að ferðast enn ódýrara“, segir William Shaw, framkvæmdarstjóri VivaColombia.

Farþegar myndu þá standa um borð líkt og í strætó

„Við erum alltaf til í að skoða alla möguleika til að gera flugið ódýrara ef það er hægt“, bætir Shaw við.

Ryanair hefur þegar komið með svipaða hugmynd

VivaColombia er ekki fyrsta flugfélagið til að skoða möguleikann á því að láta farþega standa um borð en Ryanair hefur skoðað þessa leið með takmörkuðum áhuga meðal flugmálayfirvalda.

Michael O´Leary, framkvæmdarstjóri Ryanair, spurði sig árið 2010 þeirrar spurninga hvort að sætisbelti væru virkilega nauðsynleg og líkti hann flugvélum við strætisvagna með vængi og efaðist hann um að sætisbelti myndi hafa nokkuð að segja í flugslysi.

„Þú þarft ekki að spenna beltin í neðanjarðarlestinni í London og ekki í hraðlestum sem fara á yfir 200 kílómetra hraða“, sagði O´Leary.

„Flugfélagið þyrfti fyrst að fá leyfi hjá flugvélaframleiðanda sem þyrfti að fá leyfi hjá flugmálayfirvöldum“, segir Richard Taylor hjá bresku flugmálayfirvöldunum (CAA) sem efast um að þessi hugmynd gæti gengið upp.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga