flugfréttir
Air Berlin vill halda sig á Tegel í stað þess að færa sig yfir á BER
- Vilja síður færa sig ef Tegel-flugvöllurinn fær að vera opinn áfram
Tegel-flugvellinum í Berlín þann 21. maí sl.
Air Berlin hefur lýst því yfir að ef Tegel-flugvöllurinn í Berlín fær að vera opinn áfram eftir að Brandenburg-flugvöllurinn opnar þá kýs flugfélagið þýska að vera þar áfram í stað þess að færa starfsemi sína yfir á BER.
Þetta sagði Thomas Winkelmann, framkvæmdarstjóri Air Berlin, en eins og staðan
er í dag þá er gert ráð fyrir að Tegel-flugvellinum verði lokað sex mánuðum eftir
að Brandenburg-flugvöllurinn verður tekinn í notkun.
Íbúar Berlínar eru flestir alfarið á móti því að Tegel-flugvellinum verði lokað og
telja þeir að íbúar borgarinnar þurfi á öðrum flugvelli á að halda.
32.9 milljónir farþega fóru um Tegel-flugvöll og Schönefeld-flugvöll í fyrra en Brandenburg-flugvöllur
mun aðeins geta tekið við 27 milljónum farþega á ári þegar hann opnar og er strax
farið að tala um að stækka völlinn þótt hann hafi ekki enn verið tekinn í notkun.
Herferðin og undirskriftarsöfnunin „Berlin Braucht Tegel“ (eða „Berlín þarfnast Tegel“) hefur fengið
stuðning til að koma málinu til þjóðaratkvæðargreiðslu sem fram fer í september en
ef meirihluti Þjóðverja munu kjósa með flugvellinum þá verður Tegel-flugvelli ekki lokað.
„Ef Tegel verður opinn áfram þá er hægt að gera Brandenburg að flugsafni“, sagði
Winkelmann.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.