flugfréttir
Fresturinn að renna út fyrir flugfélög í Tælandi
Tælensk stjórnvöld hafa unnið hörðum höndum að því að uppfylla kröfur Alþjóðaflugmálastofnunarinnar (ICAO)
Það styttist í að frestur renni út fyrir tælensk flugfélög til að endurheimta leyfi sitt fyrir millilandaflugi til að uppfylla strangari kröfur meðal tælenskra flugmálayfirvalda.
Tælenskt flugfélag sem hefur ekki endurnýjað flugrekstrarleyfi
sitt fyrir enda ágústmánaðar mun verða svipt leyfi fyrir flugi
til annarra landa en nú þegar hafa sex tælensk flugfélög
uppfyllt öryggiskröfur og fengið leyfi sitt endurnýjað.
Lágfargjaldafélagið Nok Air er nýjasta félagið sem hefur fengið
leyfið endurnýjað en gert er ráð fyrir að Thai Smile, Thai Lion Air
og Sabaidee Airways muni sleppa fyrir horn á næstu dögum.
Þessi flugfélög verða flokkuð sem fyrsta flokks flugfélög í
Tælandi en stjórnvöld þar í landi hafa unnið hörðum höndum
við að láta flugfélög í Tælandi uppfylla lágmarksöryggiskröfur
í alþjóðaflugi samkvæmt reglugerðum ICAO.
Alþjóðaflugmálastofnunin (ICAO) varaði tælensk stjórnvöld
við stöðunni árið 2015 í kjölfar úttektar sem fram fór
þar sem í ljós kom að öryggismál hjá mörgum félögum í landinu
var ábótavant.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.