flugfréttir
Iberia pantar 20 Airbus A320neo þotur
Tölvugerð mynd af Airbus A320neo í litum Iberia
IAG (International Airlines Group) hefur lagt inn staðfesta pöntun til Airbus í tuttugu þotur úr Airbus A320neo fjölskyldunni sem munu fara í flota Iberia.
Þetta er haft eftir Luis Gallego, framkvæmdarstjóra Iberia, en flugfélagið
spænska mun fá sautján þotur af gerðinni Airbus A320neo og þrjár A321neo.
Afhendingar munu byrja á fyrri hluta næsta árs og standa yfir til ársins 2021 en vélarnar munu leysa af hólmi 16 Airbus A319 þotur, þrettán Airbus A320 þotur og tólf A321 vélar.
Iberia hefur 80 þotur í flota sínum en félagið hefur eingöngu vélar frá
Airbus en risaþotan Airbus A380 er eina vélin sem Airbus framleiðir sem er ekki að
finna í flotanum auk Airbus A318.
Iberia mun fá sextán Airbus A350-900 vélar sem verða afhentar frá og með næsta ári.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.