flugfréttir

Fyrstu A380 risaþoturnar gætu endað í niðurrifi

- Singapore Airlines skilar fyrstu A380 þotunum í október

2. júlí 2017

|

Frétt skrifuð kl. 14:17

9V-SKA var fyrsta Airbus A380 risaþotan sem Singapore Airlines fékk afhenta árið 2007

Svo gæti farið að fyrstu Airbus A380 risaþoturnar, sem koma á leigumarkaðinn í haust, verði sendar í niðurrif.

Það er Singapore Airlines sem mun skila fyrstu risaþotunum til eigenda sinna sem er þýska fyrirtækið Dr. Peters Group í Dortmund í Þýskalandi en fyrirtækið hefur reynt að finna nýjan leigjanda að vélunum en án árangurs.

Dr. Peters Group á níu Airbus A380 risaþotur en fimm voru leigðar til Air France á sínum tíma en fjórar til Singapore Airlines.

Fyrsta risaþotan, sem ber framleiðslunúmerið MSN003, mun Singapore Airlines skila aftur til Dr. Peters Group í október í haust en vélarnar voru teknar á leigu í gegnum þriðja aðilann sem er Doric Aviation.

Fyrsta vélin var smíðuð árið 2006 og afhent Singapore Airlines í október árið 2007 og er sú þota fyrsta Airbus A380 vélin sem afhent var frá Airbus.

Þrátt fyrir erfiðleika við að finna nýtt flugfélag sem hefur þörf á notaðri risaþotu þá hefur Airbus lýst því yfir að leigumarkaður fyrir notaðar A380 þotur sé töluverður.

„Við erum í viðræðum við nokkra aðila en við getum ekki útilokað þann möguleika að vélarnar verði sendar í niðurrif“, segir Anselm Gehling, framkvæmdarstjóri Dr. Peters Group, sem tekur fram að varahlutir og hreyflarnir á risaþotunum séu mjög dýrir sem gerir endursölumöguleika erfiða auk þess sem þær eru dýrar í rekstri.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga