flugfréttir

Fella niður 6 prósent flugferða vegna skorts á flugmönnum

- Bjóða nýjum Bombardier Q400 flugmönnum 2 milljónir króna í bónus

2. júlí 2017

|

Frétt skrifuð kl. 14:53

Skorturinn er talinn vera að mestu tilkomin vegna aukinna umsvifa Horizon Air, Alaska Airlines og Virgin America sem eru öll hluti að Alaska Air Group.

Skortur á flugmönnum hjá Horizon Air hefur orðið til þess að flugfélagið bandaríska hefur þurft að fella niður 6 prósent af öllu flugi sínu í ágúst.

Félagið mun fella niður hundruði flugferða í næsta mánuði þar sem ekki eru nægilega margir flugmenn tiltækir til að fljúga Bombardier Q400 skrúfuvélunum en flestar flugferðirnar sem hafa verið felldar niður eru frá Seattle og Portland.

Stjórn Horizon Air segir að vandamálið endurspegli þann skort á flugmönnum sem sé viðvarandi á landsvísu en flugmenn félagsins kenna félaginu um þar sem þeir telja að stjórnin hafi haft frest til að grípa í taumana mun fyrr með því að bjóða flugmönnum betri laun.

Skorturinn er talinn vera að mestu tilkomin vegna aukinna umsvifa Horizon Air, Alaska Airlines og Virgin America sem eru öll hluti að Alaska Air Group.

„Þetta lítur samt vel út fyrir Horizon Air. Við náðum að ráða marga nýja flugmenn júní og höldum áfram að ráða í júlí“, segir í tilkynningu frá Alaska Air Group sem segir að 300 flugmenn verði ráðnir til starfa á þessu ári.

Til að koma til móts við flugmannaskorti þá hefur Horizon Air boðið nýjum flugmönnum, sem fljúga Bombardier Q400, 2 milljóna króna bónusgreiðslur, og nýir flugmenn, sem fljúga Embraer E175 þotunum, fá 1 milljón króna bónusgreiðslur en verkalýðsfélög gagnrýna félagið fyrir að hækka ekki flugmanna í staðinn.

Þá hefur Horizon Air einnig styrkt einhverja atvinnuflugmannsnema í námi með 1.1 milljónr króna styrk og beðið eftir að þeir ljúki námi svo þeir geti hafið störf hjá félaginu.

Þá staðfestir Greg Unterseher, yfirmaður samtakanna Airlines Professionals Association (APA), að Horizon Air hafi boðið einhverjum núverandi flugmönnum tvöföld laun fyrir að taka að sér aukavaktir.

APA segir hinsvegar að Horizon Air hafi ekki brugðist nógu skjótt við flugmannaskortinum í Bandaríkjunum sem er að mestu tilkomin vegna hertari reglna um lágmarks flugtímafjölda sem var settur á árið 2013 sem fer fram á að flugmaður hafi a.m.k. 1.500 flugtíma að baki við ráðningu.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga