flugfréttir

United fer fram á að stofnandi Untied.com loki síðunni

- Stofnaði vefsíðu árið 1998 til að miðla kvörtunum í garð United

2. júlí 2017

|

Frétt skrifuð kl. 15:24

Jeremy Cooperstock stofnaði Untied.com árið 1998

United Airlines hefur unnið dómsmál í Kanada þar sem flugfélagið hefur lengi barist fyrir því að að vefsíðunni Untied.com verði lokað.

Vefsíðan Untied.com hefur tekið á móti og kvörtunum frá farþegum United Airlines en á þeim 20 árum, sem vefsíðan hefur verið starfandi, hefur forsvarsmaður síðunnar birt 32.000 kvartanir frá ósáttum farþegum sem hafa flogið með United Airlines.

Málsóknin snýst hinsvegar um nafn síðunnar, Untied, sem félagið segir vera sláandi líkt nafni félagsins, United.

Það var Jeremy Cooperstock sem stofnaði Untied.com árið 1998 og segir hann að tilgangur vefsins hefði verið að gefa ósáttum farþegum, sem fljúga með United Airlines, tækifæri á því að tjá sig og koma kvörtunum á framfæri.

Hugmyndin af síðunni kviknaði árið 1996 er Jermey var sjálfur farþegi um borð í flugi United Airlines frá Toronto til Tókýó en hann fékk ekki sætið sitt sem hann valdi við bókun og þá var ferðataskan hans brotin er hann kom á áfangastað.

Jeremy sendi inn kvörtun til United en fékk ekkert svar en þegar hann sendi annað bréf til United fékk hann staðlað svar sem er sent á alla farþega sem senda inn kvörtun.

Skömmu síðar stofnaði Jeremy síðuna og höfðu 30 ósáttir farþegar sett sig í samband við hann á sjö fyrstu mánuðunum.

Eftir að Jeremy lét United Airlines vita af vefsíðunni höfðaði félagið mál á þeim forsendum að nafn síðunnar væri mjög villandi fyrir viðskiptavini þess sem varð til þess að hann tók vefinn niður.

Vegna fjölda áskoranna frá ósáttum farþegum setti Jeremy vefinn aftur í loftið árið 1997 og lét United Airlines vita að hann væri reiðubúinn til að taka vefinn niður ef þeir myndu senda honum svar sem væri ekki staðlað, ópersónulegt svar.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga