flugfréttir
Ætla að styðja rækilega við flugmál í Danmörku
- Töluverð vonbrigði að ekki sé gert ráð fyrir stuðningi til flugkennslu
Dönsk stjórnvöld gera ekki ráð fyrir neinum stuðningi við flugkennslu
Töluverð vonbrigði eru meðal danskra flugfélaga og fyrirtækja í fluginu er danska ríkisstjórnin kynnti í gær stefnu sína til samgöngumála í Danmörku og til flugmála en ekki er þar gert ráð fyrir neinum styrkjum til flugkennslu á sama tíma og Danir standa frammi fyrir skorti á flugmönnum.
Fram kemur að þeir sem ætla sér að hefja flugnám munu þurfa að borga námið allt úr sínum
vasa en sá danskir flugnemar þurfa alls að verja vel yfir 10 milljónum króna í námið frá fyrstu
flugkennslu þar til þeir komast í hægra sætið á farþegaflugvél.
Margir aðilar í flugiðnaðinum í Danmörku hafa lýst yfir óánægju sinni þar sem ekki
er gert ráð fyrir neinu fjármagni til flugkennslu þótt að búið sé að ráðstafa fjármagni í aðra þætti
flugsins í Danmörku.
„Það hefði vel verið hægt að láta eitthvað af þessum pening renna til flugkennslu sérstaklega í ljósi
þess að það er verið að stækka flugvöllinn í Kaupmannahöfn og flugmannaskorturinn er mjög mikill og
á eftir að versna“, segir Jesper Rungholm, framkvæmdarstjóri flugfélagsins Danish Air Transport (DAT).
Anders Mark Jensen, varaformaður verkalýðsfélag starfsmanna í flugiðnaðinum, segir að sífellt
sé verið að hrósa ríkisstjórninni fyrir betrumbætur í flugmálum en á móti kemur að það gleymist
að huga að þeirri miklu þörf sem er fyrir hendi að styðja við flugkennslu í Danmörku.
Flugnemar hjá Copenhagen Air Taxi
Samtök iðnaðarins í Danmörku taka í sama streng og segja að dönsk stjórnvöld vanmeti mikilvægi
þess að láta fé renna til flugkennslu og segir Michael Svane, formaður samtakanna, ætla að beita sér
fyrir því á þinginu.
Flugnám fyrir börn sem eiga ríka forleldra
„Það er alveg fáránlegt að eina námið, fyrir utan flugnám, sem nýtur ekki styrks frá ríkisstjórninni
er snyrtifræði. Þetta verður til þes að aðeins börn, sem eiga ríka foreldra, sækjast í að verða flugmenn“, segir
Jesper Rungholm hjá flugfélaginu DAT.
Á sama tíma og fyrirtæki í fluginu hneykslast á að ríkisstjórnin danska skuli ekki láta fé renna til að niðurgreiða
flugkennslu þá þurfti Norwegian að aflýsa tugi flugferðum um helgina vegna skorts á flugmönnum sem
hafði áhrif á þúsundir farþega sem áttu bókað flug frá Kaupmannahöfn, Álaborg, Osló og Stokkhólmi.
Airbus A340 þota SAS á flugvellinum í Kaupmannahöfn
Ole Birk Olesen, samgönguráðherra Danmörku, kynnti annars stefnu dönsku ríkisstjórnarinnar
sem ætlar að beita sér fyrir því að efla flugsamgöngur enn frekar og einblína á innanlandsflugið í
Danmörku frá flugvellinum í Kaupmannahöfn í ljósi beinna tengsla milli flugsamgangna og velgengi
fyrirtækja og iðnaðar í landinu.
Kynna stefnuáætlun í flugmálum
„Flugsamgöngur er einnig stoð og styttan í ferðamannaiðnaðinum og þar af leiðandi
mun danska ríkið setja fjármagn í framkvæmdir við flugvöllinn í Kaupmannahöfn í von um að takmarkinu
verði náð sem er að auka farþegafjöldann upp í 40 milljónir farþega á ári“, segir í yfirlýsingu.
Þá ætla dönsk stjórnvöld að einfalda reglugerðir er varðar verðskrá og þjónustumál á flugvellinum
í Kaupmannahöfn í von um að auðveldara verði að laða að ný flugfélög og verður í ágúst farið yfir
fleiri þætti í þeim tilgangi að styðja við flugmál í Danmörku.
Meðal þess sem er á stefnuskránni hjá ríkisstjórn Danmerkur í flugmálum er að
þróa innviði flugvallarmála, stytta bið í öryggisleit, koma á skýrum reglum er varðar starfsmannamál,
koma á nýjum loftferðasamningum, nútímavæða flugleiðsögumál og gera rekstarumhverfi flugumferðarstjórnar
skilvirkari.
Þá ætlar ríkisstjórnin einnig að styðja við markaðsmál flugfélaga í landinu, styðja við aukin umsvif
í innanlansflugi til Jótlands ásamt fleirum atriðum er varðar innalandsflug.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.