flugfréttir
Airbus A350-1000 í flugprófunum í 45 stiga hita
Airbus A350-1000 (MSN065) lent á flugvellinum í Al Ain í Sameinuðu arabísku furstadæmunum
Ein af Airbus A350-1000 tilraunarþotum Airbus er nú komin til Sameinuðu arabísku furstadæmana þar sem hún mun gangast undir flugprófanir í mjög heitu veðri.
Mikill hiti hefur töluverð áhrif á afkastagetu flugvéla þar sem þéttleiki heits lofts er minni samanborið
við svalara loftslag og fara því slíkar prófanir ávalt fram með nýjar tegundir flugvéla.
Prófanirnar munu fara fram í Al Ain í furstadæmunum og lagði Airbus A350-1000 þotan af stað
frá Toulouse í gær (MSN065) en Airbus hefur áður notað Al Ain sem staðsetningu fyrir sambærilegar prófanir.
Klukkan 14:00 í dag að íslenskum tíma var 45°C stiga hiti í flugvellinum í Al Ain, sem liggur í um 104
km fjarlægð suður af Dubai.
Meðal þeirra flugfélaga sem hafa pantað Airbus A350-1000 vélina eru Qatar Airways og Etihad Airways
en alls hafa 12 flugfélög pantað 211 eintök af Airbus A350-1000 vélinni.
Fleiri myndir:
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.