flugfréttir

Boða til 2 vikna verkfalls til viðbótar

- Gagnrýna British Airways fyrir að eyða fé í að taka vélar á leigu frá Qatar

6. júlí 2017

|

Frétt skrifuð kl. 12:04

Boðað hefur verið aftur til verkfalls frá 19. júlí til 2. ágúst

Flugfreyjur og flugþjónar hjá British Airways, sem eru hluti af svokölluðum „Mixed Fleet“ ráðningarhópi, hafa ákveðið áframhaldandi verkfallsaðgerðir sem munu taka í gildi þremur dögum eftir að núverandi 16 daga verkfalli lýkur.

Núverandi verkfallsaðgerðir standa yfir í sextán daga til 16. júlí en þann 19. júlí hefur verið boðað til tveggja vikna verkfalls fram til 2. ágúst.

Flugfreyjur og flugþjónar British Airways, sem starfa á blönduðum flugflota, hafa lengi mótmælt lágum launum sem starfsmenn segja að sé óviðunandi en British Airways hefur tekið níu Airbus A320 þotur á leigu með áhöfnum frá Qatar Airways til að hlaupa í skarðið og minnka þau áhrif sem verkfallið hefur.

Félagið segir að 99,5% af flugferðum félagsins, er varðar „Mixed Fleet“ starfsmennina, sé á áætlun.

Verkalýðsfélagið Unite segir að kostnaðurinn, sem fer í að leigja níu þotur frá Qatar Airways, sé það hár að fénu hefði verið betur varið í að hækka launin hjá flugfreyjum og flugþjónum og þannig hefði mátt koma í veg fyrir verkfallið.

Flugfreyjur og flugþjónar í „Mixed Fleet“ hópnum segja að launin séu langt frá því að vera sómasamleg en fram kemur að auglýst laun séu frá 249.000 upp í 296.000 krónur á mánuði en margir hverjir eru aðeins með um helminginn af því í mánaðarlaun. 

Samkvæmt talsmanni Unite þá eru margar flugfreyjur og flugþjónar sem þurfa að fá sér aukavinnu til að ná endum saman og margir hafa lýst því yfir að þeir finni fyrir auknu stressi og álagi frá því þeir hófu störf hjá British Airways og hafa margir miklar áhyggjur af fjárhagsstöði sinni vegna peningaskorts. 







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga