flugfréttir

Brýn þörf á endurnýjun á lofthelginni yfir Bretlandi

- 15.000 fleiri flugvélar um breska lofthegli í sumar samanborið við í fyrra

6. júlí 2017

|

Frétt skrifuð kl. 15:38

Nú þegar hefur NATS varið 80 milljörðum króna í að endurnýja tölvukerfi en það er þó ekki nóg

Breska flugmálastjórnin NATS er sögð þurfa að beita sér enn meira fyrir því að nútímavæða flugleiðsögukerfið yfir Bretlandi til að halda í við fjölgun flugferða.

Nú þegar er verið að verja 80 milljörðum króna í endurbætur á tölvukerfi sem notað er til að stjórna flugumferðinni yfir Bretlandi en fram kemur að það sé ekki nóg þar sem einnig þarf að endurhanna gamlar flugleiðir sem eru komnar til ára sinna.

„Stærsta áskorunin fyrir okkur er að endurhanna lofthelgina svo hún falli betur að þeirri aukningu sem er í flugumferðinni til og frá Bretlandi og það þarf að horfa til framtíðar“, segir Paul Peers, yfirmaður yfir þróunardeild NATS í Prestwick Control Center.

Prestwick-flugumferðarstjórnin á von á því að leiðbeina 250.000 flugvélum á þessu sumri sem er aukning um 15.000 flugvélar frá sumrinu í fyrra.

Flugleiðirnar að verða úreltar

Prestwick Center nær yfir Manchester Area Control Center sem stjórnar flestri flugumferð yfir norðurhluta Bretlands ásamt Midlands-svæðinu og Wales frá 2.500 fetum upp í 28.500 fet og þá er Scottish Area Control Center einnig hluti að Prestwick Center sem nær yfir Skotland, Norður-Írland, Norðursjó og alveg upp að Íslandi.

Frá flugstjórnarmiðstöðinni sem stjórnar Prestwick Control

Þess má geta að hagnaður NATS vegna gjalda fyrir flugleiðsögu á seinasta fjármálaári, sem endaði þann 31. mars, jókst um 182% samanborið við fjármálaárið þar á undan.

„Flugumferðarstjórarnir okkar hafa staðið sig mjög vel við að minnka þá seinkun sem getur orðið en við höfum undirbúið okkur fyrir sumarið frá því í nóvember í fyrra“, segir Peers.

„Lofthelgin er sífellt að verða þéttsettnari með hverju árinu og við búumst við að sjá enn meiri fjölgun á næstu árum. Það má segja að lofthelgin sé eins og hraðbraut í skýjunum og við verðum að endurhanna flugumferðarsvæðin og þá þurfum við að fá styrk frá ríkisstjórninni svo það sé hægt að gera með réttum hætti“, bætir Peers við.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga