flugfréttir
Flughátíðin Allt sem flýgur fer fram á Hellu um helgina
Um 600 manns mætti á Allt sem flýgur árið 2016 og er gert ráð fyrir enn fleiri gestum um helgina
Ein af stærstu flugsýningum landsins fer fram núna um helgina, 8.-9. júlí, en þá verður flughátíð Flugmálafélags Íslands haldin á Hellu.
Hátíðin er haldin ár hvert og stefna aðstandendur að því að slá met frá síðasta sumri þegar rúmlega 600 gestir sóttu hátíðina heim.
Aðspurður um hvað dragi fólk á flughátíð segir Matthías Sveinbjörnsson forseti Flugmálafélagsins: „Flugið heillar fólk á öllum aldri. Á Hellu getur fólk séð allar tegundir flugs í miklu návígi bæði á jörðu niðri og á flugi. Það verða vélflugvélar, svifflugur, fisvélar, þyrlur, listflugvélar, drónar, svifvængir, fallhlífarstökkvarar, flugmódel og margt fleira. Það er því einstakt tækifæri fyrir áhugasama að koma til okkar á Hellu.“
Þá segir Matthías að hátíðin hafi ætið laðað að fjölskyldufólk og sé þar karamellukast úr lofti vinsælt. „Við höfum síðustu árin sinnt börnum vel og taka þau oft sín fyrstu skref inn í flugið á Hellu. Þau fá að fara um borð í vélarnar, æfa sig að stýra og kynnast fluginu í návígi. Svo er karamellukast úr lofti ákveðinn hápunktur hjá yngsta hópnum.“
Frá flugsýningunni á Hellu í fyrra
Matthías segir að hátíðin sé í klukkutíma fjarlægð frá höfuðborginni og því hafi verið mikill straumur austur í gegnum árin. „Við leggjum sérstaka áherslu á að hátíðin sé opin öllum og bjóðum því alla velkomna til okkar.“
Það er Flugmálafélag Íslands sem stendur að hátíðinni en að henni koma yfir 20 aðildarfélög um land allt. Í tilkynningu segir að allir séu velkomnir á hátíðina, ókeypis sé inn á svæðið og á tjaldstæði. Grillveisla er um kvöldið og kvöldvaka í kjölfarið.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.