flugfréttir
Ætla vera með 200 þotur á nýjum framtíðarflugvelli í Peking
Flugfloti China Eastern Airlines
Kínverska flugfélagið China Eastern Airlines ætlar sér að hafa allt að 200 farþegaþotur staðsettar á nýja Daxing-flugvellinum í Peking en gert er ráð fyrir að framkvæmdum við nýjan flugvöll fyrir Peking verði lokið í september á næsta ári.
China Eastern Airlines hefur fjárfest í nýja flugvellinum í Peking fyrir um 200 milljarða króna og
verður félagið eitt það stærsta á flugvellinum ásamt China Southern Airlines sem einnig verður
umsvifamikið á vellinum.
Stefnt er að því að taka Daxing-flugvöllinn í notkun árið 2019 og mun hann geta tekið við 72 milljónum
farþega fyrir árið 2025.
Air China ætlar sér hinsvegar ekki að færa sig um set og ætlar það félag að halda sig við flugvöllinn
í Peking (PEK) eftir að nýi flugvöllurinn opnar.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.