flugfréttir
Qatar Airways hættir við fjórar A350-900 þotur
Qatar Airways hefur fengið fimmtán Airbus A350-900 þotur afhentar
Qatar Airways hefur hætt við pöntun í fjórar Airbus A350-900 breiðþotur sem félagið hafði pantað á sínum tíma.
Afpöntunin hefur verið bókuð á lista Airbus en Qatar Airways pantaði Airbus A350-900
þoturnar fyrir 10 árum síðan eða í júní árið 2007.
Qatar Airways hefur ekki gefið upp hver ástæðan er fyrir því að félagið hefur hætt við fjórar þotur
en félagið tilkynnti hinsvegar í mars í vor að til stæði að taka fjórar Airbus A350 vélar á leigu
frá flugfélaginu LATAM.
Þrátt fyrir afbókun á fjórum Airbus A350-900 breiðþotum þá á félagið von á 39 vélum
til viðbótar af þessari gerð en Airbus hefur í dag afhent fimmtán A350-900 þotur til Qatar Airways.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.