flugfréttir
Bandarískt flugfélag hefur áhuga á notaðri Airbus A380
- Viðræður standa yfir við British Airways, asískt flugfélag og VIP flugvélaleigu
Fyrstu Airbus A380 risaþoturnar eru 10 ára gamlar og verður fyrstu fjórum vélunum skilað til eiganda sinna í október í haust
Unnið er að því að finna nýjan leigjanda fyrir fyrstu Airbus A380 risaþoturnar sem fara að koma á notaðan markað en um er að ræða fjórar risaþotur sem Singapore Airlines mun skila í haust til eiganda.
Það er þýska fyrirtækið Dr. Peters Group sem er eigandi vélannar sem voru leigðar til Singapore
Airlines árið 2007 en Singapore Airlines mun skila vélunum fjórum frá október 2017 til júní árið
2018.
Viðræður standa yfir við sex flugrekstraraðila og flugfélög og þar á meðal eitt flugfélag í
Bandaríkjunum en risaþotuna Airbus A380 er ekki að finna í Ameríku, hvorki í Suður- né Norður-Ameríku.
Ekki kemur fram hvaða flugfélag í Bandaríkjunum hafur áhuga á Airbus A380 risaþotunni
en viðræður standa meðal annars yfir við International Airlines Group (IAG) sem hefur áður
lýst yfir áhuga á að taka á leigu notaðar A380 risaþotur til að hafa í flota dótturfélagsins,
British Airways.
Þá er verið að ræða við svissneska fyrirtækið Sparfell & Partners í Sviss sem hefur áhuga
á að breyta risaþotunum í VIP þotur sem hægt væri að leigja sem lúxusvélar fyrir þjóðhöfðingja
og leiðtoga á vegum ríkisstjórna ýmissa landa.
Airbus A380 risaþota Singapore Airlines
Viðræður standa bæði yfir við aðila með leigutíma upp á 2 til 4 ár sem er lágmarksleigutími
svo útleigan á vélunum skili eigendunum hagnaði en mögulega gæti leigjandi framlengt leigunni
til fimm ára.
Möguleiki á að tvær verði nýttar í varahluti og tvær fari í útleigu
Þá standa yfir viðræður við asískt lágfargjaldafélag sem hefur áhuga á að innrétta risaþotuna
með einu farrými sem tæki 700 farþega en mögulega er um að ræða flugfélagið AirAsia.
Annar möguleiki sem Dr. Peters Group er að skoða er að nota vélarnar í varahluti og leigja
út Trent 900 hreyflana sem eru metnir á 10 milljarða á hverri vél eða 2,5 milljarð hver hreyfill en
skortur er á varahlutum fyrir risaþoturnar.
Anselm Gehling, framkvæmdarstjóri Dr. Peters Group, segir að hægt væri að nota tvær risaþotur
í varahluti og leigja út hinar tvær risaþoturnar sem myndu þá fá að fljúga áfram.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.