flugfréttir
Qatar Airways pantar tvær Boeing 747-8F fraktþotur
Boeing 747-8 þota í eigu Qatar Airways
Qatar Airways hefur lagt inn pöntun til Boeing í tvær Boeing 747-8F júmbó-fraktþotur en pöntunin er gerð á sama tíma og félagið hættir við pöntun í fjórar A350-900 vélar hjá Airbus.
Akbar Al Baker, framkvæmdarstjóri Qatar Airways, segir að
hætt hafi verið við Airbus A350-900 vélarnar fjórar vegna mikilla seinkana á
afhendingum.
Boeing 747-8F fraktvélarnar verða þær fyrstu sem Qatar Airways mun fá í flotann
af þessari gerð en félagið hefur tvær Boeing 747-400BCF í flotanum og þá hefur
félagið haft júmbó-þotur á á árum áður í flotanum sem voru af gerðinni
Boeing 747-100B og Boeing 747SP.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.