flugfréttir

Iberia lét kvenkyns umsækjendur taka óléttupróf

- Félagið hefur verið sektað um 3 milljónir króna

11. júlí 2017

|

Frétt skrifuð kl. 11:27

Iberia segir að félagið ætli að hætta að láta konur taka þungunarpróf og treysti á að þær segi yfirmönnum sínum frá því ef þær eru óléttar

Spænska flugfélagið Iberia hefur verið gert að greiða sekt upp á þrjár milljónir eftir að í ljós kom að félagið hafði neytt kvenkyns umsækjendur, sem sóttu um störf hjá félaginu, til þess að taka þungungarpróf.

Félagið hefur verið gagnrýnt fyrir kynjamisrétti fyrir þessa framkomu í garð þeirra kvenna sem hafa sótt um starf hjá félaginu en Iberia hefur svarað fyrir sig og segir félagið að þungunarprófið hafi einungis verið gert til að tryggja velferð móður og barns ef þær voru óléttar á annað borð.

Félagið er sakað um að hafa látið konurnar gangast undir prófið til að sía út þær konur sem áttu von á sér svo þær yrðu ekki gerðar að flugfreyjum en félagið segir að það hafi alls ekki verið tilgangurinn.

Flugfreyja hjá Iberia

Atvikið komst upp í Mallorca og segja spænsk yfirvöld að um alvarlegan kynjamismun að ræða og hefur Iberia nú verið gert að greiða 3 milljónir króna í sektir.

Iago Negueruela, starfsmaður í iðnaðarráðuneyti á Baleric-eyjunum, segir að Iberia geti ekki látið konur taka sérstakt próf er kemur að starfsmannaráðningum. - „Iberia hefur ekki verið að spyrja karlkyns umsækjendur hvort þeir séu nokkuð að verða feður“, segir Negueruela.

Iberia segir að félagið ætli ekki að láta konur gangast undir þungunarpróf meira og ætli félagið að „treysta“ því að þær láti yfirmenn sína vita ef þær eru óléttar.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga