flugfréttir
Lítil bjórdós var eini innritaði farangurinn
- Skilaði sér á ferðatöskufæribandið eins og hver önnur ferðataska
Dean innritaði bjórdósina er hann fór í flug frá Melbourne til Perth sl. laugardag
Hann hefur ekki þurft að hafa áhyggjur yfir því að vera með yfirvigt farþegi einn í Ástralíu sem innritaði aðeins eina litla bjórdós sem farangur.
Starfsmaður við innritun Qantas á flugvellinum í Melbourne setti viðeigandi merkingar
utan um bjórdósina sem tilheyrði farþega að nafni Dean.
Dean var að fljúga sl. laugardag innanlandsflug frá Melbourne til Perth og var takmarkið
að innrita litla dós af Emu-bjórnum sem fékk sömu meðhöndlun og hver annar farangur.
Bjórdósin skilaði sér við komuna til Perth
Vefsíðan Unilad.co.uk tók viðtal við Dean og sagði hann að hugmyndin hefði kviknað er hann og félagi
hans, sem er starfsmaður flugvallarins, voru að velta fyrir sér hvað væri undarlegasti hlutur sem hægt væri að
innrita sem farangur.
Dean var samt ekki viss um að bjórdósin myndi bíða hans á ferðatöskufæribandinu við komuna
til Perth en að lokum birtist dósin á bandinu eins og hver annar farangur.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.