flugfréttir

Er þetta síðasta júmbó-þotan sem Boeing afhendir?

- Hafa smíðað allar farþegaútgáfur sem pantaðar voru af gerðinni Boeing 747-8

12. júlí 2017

|

Frétt skrifuð kl. 16:17

HL7644 verður afhent til Korean Air þann 31. júlí næstkomandi

Engin farþegaþotuútgáfa af júmbó-þotunni er á færibandinu hjá Boeing í Everett en sl. föstudag (7. júlí) lenti seinasta Boeing 747-8 þotan í Everett sem verið er að undirbúa fyrir afhendingu til Korean Air.

Vélin var máluð í Portland í litum flugfélagsins kóreska en engar fleiri pantanir af Boeing 747-8 þotunni bíða þess að vera smíðaðar en Boeing á enn eftir að smíða fleiri fraktútgáfur af júmbó-þotunni sem nefnist Boeing 747-8F.

Enn ríkir óvissa með nokkrar Boeing 747-8 júmbó-þotur sem hafa verið færðar til geymslu sem til stóð að afhenda til rússneska flugfélagsins Transaero sem varð gjaldþrota árið 2015.

Mögulegt er að framleiðsla á farþegaþotuútgáfu júmbó-þotunnar heyri sögunni eftir hálfrar alda framleiðslu en fyrsta Boeing 747 þotan leit dagsins ljós árið 1969.

Ólíklegt er að Boeing fái fleiri pantanir í Boeing 747 sem farþegaþotu þar sem flugfélög hafa sl. ár eingöngu pantað sparneytnari tveggja hreyfla breiðþotur á borð við Boeing 777X og Airbus A350.

Síðasta farþega-júmbóþotan hefur sig á loft frá flugvellinum í Portland þar sem hún var máluð í litum Korean Air

Boeing kynnti arftaka júmbó-þotunnar árið 2004 sem Boeing 747 Advanced en árið 2005 fékk hún heitið Boeing 747-8 og hafa aðeins þrjú flugfélög í heiminum pantað þá vél fyrir farþegaflug sem eru Lufthansa, Korean Air og Air China.

Aðeins þrjú flugfélög pöntuðu Boeing 747-8 fyrir farþegaflug

39 Boeing 747-8 hafa verið pantaðar og hafa 19 verið afhentar til Lufthansa, níu hafa verið afhentar til Korean Air og sjö þotur til Air China.

Þá hafa átta VIP-útgáfur af vélinni verið afhentar en 86 fraktútgáfur voru pantaðar (Boeing 747-8F) af félögum á borð við Cargolux, Silk West Airlines, Nippon Cargo Airlines, Volga-Dnepr Airlines, Korean Air Cargo, Cathay Pacific Cargo og tveimur fraktflugfélögum til viðbótar.

Síðasta farþegajúmbóþotan í bili ber skráninguna HL7644 og verður hún tíunda og jafnframt sú síðasta sem afhent verður til Korean Air þann 31. júlí næstkomandi.

Boeing 747-8 og risaþotan Airbus A380 eru einu fjögurra hreyfla farþegaþoturnar sem framleiddar eru í dag en risaþota Airbus hefur einnig átt erfitt uppdráttar að undanförnu.

Hæpið er að fleiri flugfélög eigi eftir að panta Boeing 747-8







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga