flugfréttir
Skulda 73 milljónir fyrir að skila Airbus A320 þotu of seint
Airbus A320 þota SriLankan Airlines
SriLankan Airlines hefur safnað sektum upp á 73 milljónir króna þar sem félagið skilaði of seint Airbus A320 þotu til baka umráðanda vélarinnar sem er indverska flugfélagið IndiGo Airlines.
SriLankan Airlines átti að skila vélinni til IndiGo þann 8. maí en vélinni var ekki skilað á réttum
tíma vegna viðhaldsmála.
Vélin hefur ekki flogið áætlunarflug frá því seinasta gamlársdag, þann 31. desember 2016, en í apríl
var vélin ferjuð til Jakarta í Indónesíu og kom hún ekki til baka til flugvallarins í höfuðborginni
Colombo fyrr en 19. maí.
Eigandi vélarinnar hinsvegar er írska flugvélaleigan Goshawk í Dublin en fyrirtækið hefur
92 flugvélar til umráða sem félagið leigir til 38 flugfélaga í 28 löndum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.