flugfréttir
Airbus A320 festist með hjólin í bráðnuðu malbiki fyrir flugtak
- Var föst og brautinni lokað á meðan
Airbus A320 þota Vueling á flugvellinum í Barcelona
Farþegaþota frá Vueling náði ekki að fara í flugtak á flugvellinum í Barcelona sl. laugardag en þegar til stóð að hefja flugtaksbrun þá kom í ljós að vélin hreyfðist ekki fet.
Vélin, sem er af gerðinni Airbus A320, var búin að stilla sér upp fyrir flugtak til Malaga
og var komin með flugtaksheimild frá flugturni en þegar flugmennirnir juku afl hreyflanna
til að hefja flugtakið þá hreyfðist vélin ekki á brautinni.
Í ljós kom að yfirlag brautarinnar hafði „bráðnað“ sem varð til þess að hjól vélarinnar höfðu
sokkið nokkra sentimetra ofan í malbikið.
Brautinni var lokað tímabundið í kjölfarið og voru aðrar tvær brautir notaðar í staðinn á meðan
unnið var að því að koma vélinni af brautinni.
Ekki kemur fram hvað olli því að malbikið bráðnaði en hitastigið á flugvellinum, er atvikið átti sér stað, var um 28 gráður.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.