flugfréttir
McCall mun hætta sem framkvæmdarstjóri easyJet
Carolyn McCall, framkvæmdarstjóri easyJet
Carolyn McCall mun hætta sem framkvæmdarstjóri breska lágfargjaldafélagsins easyJet um næstu áramót en hún hefur stýrt félaginu frá árinu 2010.
EasyJet segir að félagið sé nú þegar byrjað að leita að staðgengil hennar og verði hann
valinn úr stórum hópi þeirra sem koma helst til greina.
McCall mun taka við nýju starfi sem framkvæmdarstjóri hjá sjónvarpstöðinni bresku ITV
en hún segir að hún muni verða tryggur viðskiptavinur easyJet sem farþegi um ókomin
ár og tekur fram að starf hennar hjá easyJet mun standa upp úr á sínum ferli.
John Barton, forstjóri easyJet, hampar McCall og segir að það sé henni að þakka hversu
góð staða easyJet sé í dag og hafi hún náð að breyta rekstri félagsins á seinustu árum
til hins betra.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.