flugfréttir
United gæti hætt við allar Airbus A350 þoturnar
- Fresta afhendingum á fyrstu fjórum A350-100 þotunum til óákveðins tíma
Tölvugerð mynd af Airbus A350 í litum United Airlines
United Airlines hefur ákveðið að fresta því að taka á móti fyrstu fjórum Airbus A350 þotunum sem félagið átti að fá afhentar upphaflega á næsta ári.
United á von á fyrstu Airbus A350-1000 vélunum árið 2019 en félagið pantaði 35
þotur af þeirri gerð á sínum tíma.
Andrew Levy, fjármálastjóri United Airlines, segir að óvíst sé hvort að félagið taki
Airbus A350-1000 vélarnar og sé verið að skoða aðra mögulega þar sem verið er að
endurskoða flotastefnu félagsins.
A350-1000 vélin er eina tegundin sem United Airlines hefur pantað en United
hefur einnig frestað móttöku á fyrstu tólf Boeing 737 MAX 9 þotunum til
ársins 2019.
„Airbus A350 pöntunin erum við mikið að velta fyrir okkur með og erum við að
skoða aðra kosti sem koma til greina“, segir Levy.
Þrátt fyrir breytingarnar þá á félagið von á 100 vélum af gerðinni Boeing 737 MAX 10
og verða þær fyrstu afhentar árið 2020.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.