flugfréttir
Irkut fær pöntun í 31 þotu af gerðinni MC-21-300
Rússneska MC-21 þotan flaug sitt fyrsta flug þann 28. maí sl.
Rússneski flugvélaframleiðandinn Irkut hefur fengið pöntun frá Ilyushin Finance í 31 farþegaþotu af gerðinni Irkut MC-21-300 sem verða leigðar til Red Wings og VIM-Avia sem bæði eru rússnesk flugfélög.
Þetta var tilkynnt á MAKS Air Show flugsýningunni sem hófst í gær í Rússlandi en
sýningin stendur fyrir til 23. júlí en um er að ræða stærstu flugsýningu þar í landi.
Red Wings mun fá sextán MC-21-300 þotur frá árinu 2019 til 2022 en fjórar
vélar munu koma með rússneska PD-14 hreyflinum á meðan 12 þotur verða knúnar
áfram með PW1000G hreyflinum frá Pratt & Whitney.
VIM-Avia fær fimmtán þotur en þær fyrstu verða afhentar árið 2021 og munu
afhendingar standa yfir til ársins 2024.
Dmitry Medvedev, forsætisráðherra Rússlands, hefur lagt mikið upp úr að efla
markaðsetningu MC-21-300 þotunnar í Rússlandi en enn er mjög langt í land þar
til hægt verður að ná inn pöntunum í þotuna frá vestrænum löndum og ríkjum
utan Rússlands.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.