flugfréttir
EasyJet flýgur fyrsta flugið undir evrópskri skráningu
- EasyJet Europe tryggir starfsemi félagsins í Evrópu eftir Brexit
Fyrsta „evrópska“ Airbus-þotan hjá easyJet hefur fengið skráninguna OE-IVA
EasyJet flaug í dag fyrsta áætlunarflugið undir nýju austurrísku flugrekstrarleyfi sem félagið hefur fengið í hendurnar sem gerir félaginu kleift að fljúga innan Evrópu sem EasyJet Europe.
EasyJet stofnaðu EasyJet Europe í þeim tilgangi að vernda starfsemi félagsins í Evrópu
eftir að Bretland sagði sig úr Evrópusamstarfinu.
Carolyn McCall, framkvæmdarstjóri easyJet, segir að fyrsta áætlunarflug EasyJet
Europe hafi verið flogið í dag, 20. júlí, en vélin sem hafði áður skráninguna
G-EZPA er í dag skráð sem OE-IVA en OE er skráningarforskeyti flugvéla í Austurríki.
McCall segir að með stofnun EasyJet Europe sé búið að tryggja öryggi
starfsemi easyJet í Evrópu og mun Brexit því ekki koma til með að hafa frekari áhrif
á félagið.
EasyJet gerir ráð fyrir að skrá yfir 100 þotur yfir á austurríska skráningu í Evrópu
þrátt fyrir að þær muni hafa bækistöðvar í Bretlandi.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.