flugfréttir

Risaþota Emirates og A330 þota stefndu hvor á aðra í sömu hæð

- Flugumferðarstjórar tóku ekki eftir að flugmenn lásu til baka ranga flughæð

21. júlí 2017

|

Frétt skrifuð kl. 11:47

Láréttur aðskilnaður vélanna var 13 kílómetrar og 0 fet er þær mættust

Airbus A380 risaþota frá Emirates og Airbus A330 breiðþota frá Air Seychelles fóru hættulega nálægt hvor annarri úr sitthvorri áttinni í 37.000 fetum yfir Indlandshafi þann 14. júlí sl.

Risaþota Emirates var á leið frá Dubai til eyjunnar Mauritius í 40.000 fetum þegar flugumferðarstjórar gáfu flugmönnum vélarinnar fyrirmæli um að lækka niður í 38.000 fet og voru þeir látnir vita að flugvél sem væri að koma á móti sem væri að hækka upp í fluglag FL370.

Flugmennirnir á risaþotunni lásu til baka FL360 en flugumferðarstjórar leiðréttu ekki þann misskilning en þeir voru beðnir um að lækka niður í FL380.

Airbus A330 þota Air Seychelles, sem hafði farið í loftið frá Mauritius, áleiðis til Seychelles-eyja, var að klifra sig í gegnum 33.000 fet þegar Emirates-risaþotan nálgaðist þar sem hún var að lækka sig í gegnum 38.000 fet.

Þoturnar á Flightradar24.com er þær mættust yfir Indlandshafi

Flugmenn beggja vélanna sáu hvor aðra er vélarnar mættust og fór TCAS-kerfi (Traffic Collision Avoidance System) í báðum vélunum í gang sem vöruðu við árekstri en Air Seychelles vélin beygði til hægri til að forðast árekstur við Emirates-risaþotuna

Upplýsingar með feril vélanna sýnir að 13 kílómetrar skildu vélarnar að með láréttum aðskilnaði en lóðréttur aðskilnaður var enginn eða 0 fet þar sem vélarnar voru nákvæmlega í sömu hæð í 36.000 fetum er þær fór framhjá hvor annarri en báðar vélarnar voru á um 900 km hraða á klukkustund.

Hraði Emirates vélarinnar var 485 kts á meðan Air Seychelles vélin mætti henni á 478 hnúta hraða.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga