flugfréttir
Áfangastaðir Turkish Airlines orðnir 300 talsins
Boeing 777-300ER þota Turkish Airlines á flugvellinum í Istanbul
Áfangastaðir í leiðarkerfi Turkish Airlines eru orðnir 300 talsins en flugfélagið tyrkneska flaug þann 17. júlí sitt fyrsta flug til Phuket í Tælandi sem er þrjú hundruðasti áfangastaður félagsins.
Ekkert flugfélag í heiminum flýgur til eins margra landa eins og Turkish Airlines en félagið
flýgur til 119 landa en næst á eftir kemur Air France sem flýgur til 93 landa í heiminum.
Af þeim 300 áfangastöðum sem Turkish Airlines flýgur til þá eru 49 þeirra í innanlandsflugi í Tyrklandi
á meðan 251 eru í millilandaflugi.
Turkish Airlines hefur verið valið sem besta flugfélag Evrópu í 6 ár í röð af fyrirtækinu SkyTrax sem gefur
flugfélögum og flugvöllum einkunn fyrir frammistöðu sína í fluginu.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.