flugfréttir

JetBlue stefnir á að reisa nýja flugstöð á JFK í New York

- Mun rísa þar sem Terminal 6 var staðsett

24. júlí 2017

|

Frétt skrifuð kl. 07:03

Flugvélar jetBlue á Kennedy-flugvellinum í New York

Bandaríska flugfélagið jetBlue hefur hafið útboð vegna fyrirhugaðra framkvæmda á nýrri flugstöð á Kennedy-flugvellinum í New York.

Nýja flugstöðin verður notuð einungis af jetBlue og mun hún koma til með að rísa þar sem sem flugstöðin Terminal 6 var staðsett en sú bygging var rifin niður árið 2011 eftir að félagið flutti sig yfir á Terminal 5.

JetBlue ætlar sér að tengja nýju bygginguna við Terminal 5 en með því munu farþegar geta farið á milli án þess að þurfa að fara aftur í gegnum öryggisleit.

Fylkisstjórn New York lýsti því yfir í janúar að til stæði að verja fleiri hundruð milljörðum króna í endurbætur á Kennedy-flugvellinum sem er einn stærsti flugvöllur Bandaríkjanna en það verður hinsvegar jetBlue sem mun fjármagna framkvæmdirnar en ekki Port Authority of New York and New Jersey (PANYNJ) sem á og tekur Kennedy-flugvöll.

Ekki kemur fram hvað framkvæmdir á nýrri flugstöð munu kosta jetBlue en þess má geta að British Airways ætlar að verja 6,7 milljörðum í fjárfestingar við rekstur Terminal 7.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga