flugfréttir
Ryanair gæti þurft að skrá flugflotann á meginlandi Evrópu
Flugfloti Ryanair
Ryanair hefur lýst því yfir að félagið muni færa skráningu alls flugflotans frá Bretlandi og skrá vélarnar á meginlandi Evrópu ef ekki verður komið á opnum loftferðasamingi fyrir lok ársins í kjölfar þess að Bretar kusu að yfirgefa Evrópusamstarfið.
Ryanair hefur hátt í 90 þotur sem eru staðsettar á breskum flugvöllum sem fljúga til tugi áfangastaða í Evrópu
undir opnum loftferðasáttmála á vegum Evrópusambandsins.
Ryanair segir að ef ekki verði búið að finna lausn á því hvaða afleiðingar Brexit mun hafa fyrir flugferðir
milli Bretlands og meginlands Evrópu fyrir árið 2018 gæti svo farið að félagið verði að fella niður allar flugferðir
frá Bretlandi og jafnvel færa allan flotann yfir til meginlandsins.
EasyJet, samkeppnisflugfélag Ryanair, hefur gert ráðstafanir vegna Brexit og vinnur nú að því að skrá tugi flugvéla á meginlandi Evrópu með því að færa vélarnar yfir á austurríska skráningu.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.