flugfréttir
Fyrsta Dreamliner-þotan í litum El Al Israel Airlines
Fyrsta Dreamliner-vélin fyrir El Al Israel Airlines verður afhent félaginu um miðjan ágúst
Fyrsta Dreamliner-þotan fyrir ísraelska flugfélagið El Al Israel Airlines hefur verið máluð í litum félagsins í Portland í Oregon í Bandaríkjunum.
El Al Israel Airlines á von á sextán Dreamliner-þotum; sjö af gerðinni Boeing 787-8 og níu af gerðinni
Boeing 787-9.
Fyrsta vélin sem félagið fær er af gerðinni Boeing 787-9 og verður hún afhent til félagsins um miðjan
ágúst og hefur vélin fengið nafnið „Ashdod“ og kemur hún með merkingu sem á stendur “Proudly All Boeing“ en
El Al hefur eingöngu þotur frá Boeing í flotanum.
Fyrsta Dreamliner-þota El Al mun fara í sitt fyrsta áætlunarflug frá Tel Aviv til London Heathrow í haust
en fyrir lok ársins verða vélarnar einnig notaðar í flugi til Newark-flugvallarins í Bandaríkjunum.
Myndir:
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.