flugfréttir
Gleymdu að taka hjólin upp eftir flugtak
- Urðu varir við óvenju mikla eldsneytiseyðslu á leiðinni
Tölvugerð mynd af Airbus A320 þotu frá Air India
Tveir flugmenn hjá Air India hafa verið leystir frá störfum eftir að þeir gleymdu að taka upp hjólin á Airbus A320 þotu eftir flugtak.
Vélin fór í loftið frá flugvellinum í Kalkútta áleiðis til Bombay þann 22. júlí sl. en flugmennirnir uppgötvuðu að hjólin voru enn niðri er flugið var hálfnað og vélin komin yfir miðjan Indlandsskaga.
Flugmálayfirvöld á Indlandi segja að tvær konur, sem flugu vélinni, hafa verið leystar af störfum tímabundið á meðan rannsókn fer fram.
Ætluðu að setja hjólin niður fyrir lendingu en voru þá niðri
Fram kemur að flugmennirnir tóku eftir því eldsneytiseyðslan var óvenju mikil á sama tíma og vélin náði ekki að komast upp fyrir 24.000 fet.
Vélin hafði flogið í tæpa eina og hálfa klukkustund og ákváðu flugmennirnir að lenda í borginni Nagpur þar sem þeir sáu ekki fram á að ná til Bombay en eldsneytið átti að duga fyrir flugið og gott betur þar sem vélin átti einnig að ná til varaflugvallar.
Þegar flugmennirnir ætluðu að setja niður hjólin fyrir lendingu í Nagpur kom hinsvegar í ljós að hjólin voru þegar niðri.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.