flugfréttir
Hafa afhent 100 Airbus A350 þotur frá upphafi
- China Airlines tekur við hundruðustu A350 þotunni
Starfsfólk Airbus og China Airlines við hundruðustu Airbus A350 þotuan sem Airbus hefur afhent
Airbus afhenti í gær hundruðustu Airbus A350 þotuna en það er kínverska flugfélagið China Airlines sem tók við þeirri vél við hátíðlega athöfn sem fram fór í Toulouse í Frakklandi.
Tvö og hálft ár eru liðin frá því Airbus afhenti fyrstu A350 þotuna til Singapore Airlines um miðjan
janúar árið 2015.
Vélin sem var afhent í gær til China Airlines er sjötta Airbus A350-900 þota félagsins og hefur
félagið því fengið helminginn af þeim 14 þotum sem pantaðar voru af þessari gerð.
Í dag hafa yfir 13 milljónir farþega flogið með Airbus A350 hjá þeim 14 flugfélögum sem hafa
fengið þessa vél frá Airbus.
Qatar Airways er komið með flestar vélarnar eða alls 19 Airbus A350 þotur
og þá hefur Cathay Pacific fengið 16 vélar og þá er Singapore Airlines komið með fimmtán vélar.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.