flugfréttir
Saga Antonov á enda
- Úkraína setur á fót slitastjórn til að skipta upp búi framleiðandans
Antonov framleidd An-225 Mriya vélina árið 1988 sem er stærsta flugvél veraldar
Saga Antonov er senn á enda en ríkisstjórn Úkraínu hefur sett saman sérstaka slitanefnd sem er ætlað að sjá um að skipta upp búi og rekstri Antonov-verksmiðjanna.
Flugvélaframleiðandinn úkraínski er þekktastur fyrir risastórar frakflugvélar sem hafa meðal
annars haft viðdvöl á Keflavíkurflugvelli á leið sinni yfir hafið en Antonov framleiddi árið 1988
risafraktþotuna Antonov An-225 Mriya sem er stærsta flugvél veraldar.
Fyrir nokkrum árum störfuðu Rússar og Úkraínumenn saman er kom að flugvélasmíði bæði
fyrir farþegaflug og herflug en lítið hefur farið fyrir vinskap meðal þjóðanna í átaka og óeirða sem brutust út á Krímskaga fyrir fjórum árum og hefur framleiðslu á Antonov An-140 vélinni
til að mynda verið hætt.
Antonov var stofnað árið 1946
Mikil upplausn hefur átt sér stað að undanförnu innan herbúða Antonov og hefur einn af
aðalhönnuðum framleiðandans yfirgefið Úkraínu og flutt til Azerbaijan og þá hafa margir starfmenn
yfirgefið verksmiðjurnar og flutt til Rússlands og fengið vinnu í rússneskum flugvélaverksmiðjum.
Ríkisstjórn Úkraínu hefur gefið slitanefndinni þrjá mánuði til að ganga frá gjaldþrotaskiptum
Antonov og greiða lánadrottnum, fjárfestum og öðrum aðilum, það fé sem þeir eiga inni.
Antonov var stofnað árið 1946 í rússnesku borginni Novosibirsk og var fyrirtækið stofnað
sem sovíesk leynihönnunardeild í flugvélaiðnaði en verksmiðjurnar voru fluttar til Kænugarðs
árið 1952.
Meðal þekkustu flugvéla sem Antonov framleiddi eru vörufluttningavélarnar Antonov An-125 Ruslan,
og hin sex hreyfla Antonov An-225 Mriya flugvél en listi yfir þær flugvélategundir, sem Antonov framleiddi, skiptir fleiri
tugum.
Þótt saga Antonov sé á enda þá mun það ekki hafa áhrif á flugvélaframleiðslu yfir höfuð í Úkraínu þar sem engar vélar undir nafni Antonov hafa verið smíðaðar frá árinu 2015 þar sem starfsfólk móðurfélagsins, Ukroboronprom, hafa verið færðir í aðrar stöður.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.