flugfréttir
Rússneskir flugmenn flykkjast til Kína og Suður-Kóreu
- Reyna að stöðva „leka“ á flugmönnum sem þiggja atvinnutilboð í Asíu
Margir rússneskir flugmenn hafa að undanförnu þegið atvinnutilboð frá flugfélögum í Kína og Suður-Kóreu
Rússnesk flugfélög eru í miklum vanda þar sem flest þeirra eru að missa rússneska flugmenn yfir til flugfélaga í Kína og Suður-Kóreu sem bjóða þeim nú gull og græna skóga.
Stjórnvöld í Moskvu höfðu á sínum tíma komið í veg fyrir að kínversk flugfélög gætu hirt fleiri rússneska flugmenn
yfir landamærin en Kínverjar fundu glufu í kerfinu og hafa náð að ráða rússneska flugmenn til sín
í gegnum Bermúda-eyjar þar sem langflestar farþegaþotur í flugflota Rússlands eru skráðar á eyjunum.
Rossiya Airlines, dótturfélag Aeroflot, hefur sent beiðni til flugmálayfirvalda á Bermúda og beðið þá um að hætta
að gefa út flugskírteini fyrir rússneska flugmenn sem gefur þeim heimild til að starfa í Kína.
Þá hafa Kínverjar einnig komist yfir aðgang að gangagrunni á Bermúda-eyjum sem geymir upplýsingar
um rússneska atvinnuflugmenn sem skráðar hafa verið í tengslum við skráningu á rússneskum farþegaþotum á eyjunni.
Gríðarleg aukning hefur orðið á fjölda þeirra farþega sem fljúga með rússneskum flugfélögum sem hafa sl. misseri pantað
fleiri nýjar farþegaþotur en stóra vandamálið er að allt stefnir í að ekki eru til nægilega margir hæfir flugmenn
í Rússlandi til að fljúga þeim þotum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.