flugfréttir
Qatar Airways hættir við kaup á 10 prósenta hlut í American
Qatar Airways hefur hætti við áform sín um að kaupa 10% hlut í American Airlines
Qatar Airways hefur hætt við áform sín um að kaupa 10 prósenta hlut í American Airlines eins og tilkynnt hafði verið.
American Airlines lýsti því yfir í lok júnímánaðar að Qatar Airways hefði sýnt áhuga á að kaupa
1/10 hlut í félaginu en Akbar Al Baker, framkvæmdarstjóri Qatar Airways, bar tilboðið undir
Doug Parker, framkvæmdarstjóra American, á fundi sem þeir áttu saman.
American Airlines sagði fyrr í sumar að tilboð Qatar Airways væri algjörlega „óumbeðið“ af þeirra
hálfu og sagði Parker tilboðið hafa komið félaginu bandaríska verulega á óvart í ljósi deilna
milli flugfélaganna fyrir botni Persaflóa og þeirra bandarísku sem hafa ásakað Emirates, Etihad Airways
og Qatar Airways um að þiggja ólögmæta styrki.
Qatar Airways hefði getað fest kaup á 4% hlut í American Airlines en þarf leyfi frá bandarískum
stjórnvöldum fyrir hærri hlut.
Þess má geta að Qatar Airways er stærsti hluthafi í British Airways og hafði félagið lýst því yfir að til stæði að fjárfesta í fleiri flugfélögum og þá helst í þeim bandarísku.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.