flugfréttir
Austrian hættir með Fokker 70
- Seldar til flugfélags í Ástralíu
Fokker 70 þota Austrian Airlines
Austrian Airlines hefur tilkynnt að félagið hafi hætt með Fokker 70 þoturnar og hafi seinasta vélin af þessari gerð yfirgefið flotann í júlí.
Seinasta Fokker 70 þotan í flota Austrian flaug síðasta áætlunarflugið þann 30. júlí frá Bologna til Vínarborgar.
Vélin, sem var smíðuð árið 1996, mun þá ekki enda sinn feril því hún mun fá áframhaldandi líf
hjá flugfélaginu Alliance í Ástralíu en Austrian Airlines gerði samning í nóvember árið 2015 við ástralska félagið Alliance Airlines í Brisbane sem ákvað
að kaupa yfir tuttugu Fokker-þotur af félaginu sem hafa verið afhentar hægt og bítandi sl. misseri.
Innan herbúða Austrian eru menn ánægðir með að hafa fundið kaupanda að Fokker-vélunum en margar vélar sem eru komnar á þennan aldur hafa endað sem brotajárn í flugvélakirkjugörðum en Fokker-vélarnar hafa þó verið eftirsóttar þar sem þær þykja ómissandi vinnuhestur.
Austrian Airlines hefur þó enn sex Fokker 100 þotur sem munu hverfa úr flotanum fyrir lok ársins og fara þær einnig til
Alliance Airlines í Ástralíu.
Austrian Airlines mun í staðinn fá sautján Embraer E-195 þotur sem koma úr flota CityLine, dótturfélagi Lufthansa.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.