flugfréttir
Fleiri flugfélög í Kína boða komu sína á nýja flugvöllinn í Peking
Tölvugerð mynd af flugvellinum í Daxing-hverfinu en hann hefur ekki enn fengið nafn
Átta flugfélög í Kína hafa tilkynnt komu sína á nýja alþjóðaflugvöllinn í Peking sem nú er í smíðum en áætlað er að taka hann í notkun eftir tvö ár.
Um 40% af umferðinni um völlinn verða áætlunarflug á vegum
China Eastern Airlines og China Southern Airlines munu sem bæði eru ein
af þremur stærstu flugfélögunum í Kína.
Meðal annarra flugfélaga sem ætla að færa starfsemi sína á nýja flugvöllinn
eru Hebei Airlines, dótturfélag Xiamen Airlines, Beijing Capital Airlines, Donghai
Airlines, Spring Airlines og Okay Airwways.
Flugvöllurinn mun geta tekið við 72 milljónum farþega á ári og 2 milljónum
tonna af frakt árið 2025 en stefnt er á að taka flugvöllinn í notkun árið 2019.
Nýi flugvöllurinn mun rísa í Daxing-hverfinu og verður hann staðsettur í
um 50 kílómetra fjarlægð suður af miðborg Peking en
alþjóðaflugvöllurinn í Peking er staðsettur 24 kílómetrum norðaustur af miðborginni.
Yfirlitsteikning af nýja flugvellinum
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.