flugfréttir

Sendir myndir til flugmanna á annarri þotu í 35.000 fetum

- Singapore Airlines segir að myndbandið sé „falsað“ að hluta til

5. ágúst 2017

|

Frétt skrifuð kl. 14:17

Myndbandið hefur farið víða og hafa margir lýst því yfir flugmaðurinn hafi ekki geta sent myndirnar yfir til flugmannanna á Singapore Airlines vélinni

Singapore Airlines hefur lýst því yfir að myndband, sem farið hefur víða á Netinu síðastliðinn sólarhring, sem sýnir flugstjóra skiptast á mynd við flugmenn á annarri þotu, sé tilbúningur og um falsað mynband sé að ræða.

Flugstjóri á Boeing 747-8 fraktþotu frá Nippon Cargo Airlines tók meðfylgjandi myndband á dögunum í 35.000 feta hæð og sést hvar Boeing 777 farþegaþota frá Singapore Airlines tekur fram úr honum á vinstri hönd í 1.000 feta hæð fyrir ofan.

Flugstjórinn tók mynd af Boeing 777 þotunni og segist ætla reyna senda myndina yfir gegnum AirDrop sem er forrit frá Apple sem býður upp á að senda gögn á milli gegnum wi-fi án þess að notast við geymslupláss eða tölvupóst.

Flugstjórinn á Nippon Cargo vélinni sendir myndina yfir þráðlaust og kallar í flugmennina í talstöðinni á Singapore Airlines vélinni og segist hafa náð flottum myndum af þeim út um gluggann á stjórnklefanum og tilkynnir þeim að hann sé að reyn að senda myndirnar á þá gegnum AirDrop.

Skjáskot af myndbandinu sem má sjá að neðan

Ekki er staðfest hvort að myndirnar hafi farið yfir en á skjánum á iPhone-síma flugstjórans sést tenging við AirDrop sem kallast „SingTripple7“.

Tilraunin til að senda myndirnar yfir virðast hafa skilað árangri og flugmennirnir á Singapore Airlines vélinni svara: „We appreciate your AirDrop“ og að því loknu er myndbandið á enda.

Myndbandið hefur farið eins og eldur um sinu á Netinu síðan í gær og sendi Singapore Airlines frá sér yfirlýsingu vegna málsins þar sem fram kemur að myndbandið er ekki rétt að öllu leyti þar sem flugmennirnir á Singapore Airlines-vélinni fengu myndina í tölvupósti síðar eftir að þeir voru lentir.

Skiptar skoðanir hafa verið í umræðum um málið varðandi myndbandið og hefur verið bent á að AirDrop hefur aðeins drægi upp á 30 fet og sé ógjörningur að senda gögn með AirDrop þegar fjarlægðin er svona mikil.

Myndband:







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga