flugfréttir
Fyrsta Airbus A350 fyrir Delta flýgur til Atlanta í kvöld
Fyrsta Airbus A350 þotan fyrir Delta Air Lines í Toulouse
Verið er að undirbúa afhendingarflugið fyrir fyrstu Airbus A350 þotuna fyrir Delta Air Lines sem mun hefja sig á loft frá Toulouse klukkan 21:00 í kvöld áleiðis til Atlanta í Bandaríkjunum.
Vélin er sú fyrsta af þeim 25 Airbus A350-900 þotum sem Delta Air Lines pantaði á sínum
tíma en þær munu bæði leysa af hólmi júmbó-þotuna og eldri Boeing 767-300ER þotur í flotanum.
Verið er að smíða fimm Airbus A350 þotur til viðbótar fyrir Delta Air Lines sem allar
eru á mismunandi stigi í samsetningunni en næsta Airbus A350 þota verður afhent til félagsins
snemma í september.
Delta ætlar að fljúga fyrsta áætlunarflugið með Airbus A350 þann 30. október frá
Detroit til Tókýó en á þeirri flugleið hefur félagið notað Boeing 747-400.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.