flugfréttir
Vindhvörf meginorsök flugslyssins í Dubai í fyrra
- Koma með tillögur að breytingum varðandi veðurupplýsingar til flugmanna
Slysið átti sér stað þann 3. ágúst 2016
Rannsóknarnefnd flugslysa í Sameinuðu arabísku furstadæmunum hefur birt tímabundna uppfærslu á rannsóknarskýrslu varðandi flugslys sem átti sér stað þann 3. ágúst í fyrra er Boeing 777-300 þota frá Emirates brotlenti í lendingu á flugvellinum í Dubai.
Flugslysasérfræðingar hafa einblínt hvað mest á veðurskilyrðin sem voru á staðnum er slysið átti sér stað og þá einna helst vindinn
en af þeim fjórum flugvélum, sem lentu áður en Emirates-vélin brotlenti, þá höfðu tvær af þeim farið í fráflug („go around“) vegna
vindhvarfa á flugvellnum („wind shear“).
Vaktstjóri í flugturninum á flugvellinum í Dubai var nýbúin að ræða við flugumferðarstjóra, sem stjórnaði aðfluginu, um vindáttina
þar sem breytileg vindátt var farin að breytast í meðvind inn á milli en í frumskýrslunni kemur fram að flugumferðarstjórarnir
lýstu því að veðurskilyrðin hvað vindinn varðar voru frekar „furðulegar“.
Að lokum var ákveðið að skipta um braut þar sem vindurinn var farinn að snúast með ríkjandi meðvindi á brautarendann sem var í notkun en á þeim tímapunti var Boeing 777-300 þotan frá Emirates við það að lenda en hún brotlenti 10 sekúndum síðar eftir misheppnað fráflug.
Vélin hafði verið með mótvind niður að 1.000 fetum en eftir það var vélin farin að fá á sig töluverðan meðvind sem jókst upp
í 16 hnúta eða sem samsvarar 8 metrum á sekúndu en fimm sekúndum fyrir lendingu breyttist vindurinn aftur í mótvind.
Rannsóknarnefndin í Dubai hefur lagt til tillögur að breytingum á verkferlum er snúa að mati á veðurupplýsingum til flugmanna
auk þess sem búið er að framkvæma ítarlega úttekt á rýminguna sem fram fór í kjölfarið vindáttin hafði töluverð áhrif á rýmingu vélarinnar og notkun neyðarrennibrauta.
Enginn um borð lést í slysinu en einn slökkviliðsmaður lést af sárum sínum við björgunaraðgerðir þar sem vélin varð alelda eftir
brotlendinguna.
Þá kemur fram að tæknilegt ástand vélarinnar hafi verið í lagi og engin bilun hafi fundist en enn er verið að rannsaka mannlega þáttinn.
Frumskýrsla vegna slyssins var birt í fyrra en talið er að lokaskýrslan verði birt árið 2019.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.